KA styrkti stöðu sína á toppi 1. deildar karla í kvöld þegar liðið vann 0-2 sigur á Selfossi og tók þar með þriggja stiga forystu á erkiféndurna í Þór sem eiga leik á morgun.
HK náði í þrjú mikilvæg stig í botnbaráttunni með því að vinna lið Fram með tveimur mörkum gegn engu í Kórnum í Kópavogi og þá vann Leiknir Reykjavík mikilvægan sigur á Haukum sem lyfti þeim í 4. sæti deildarinnar.
Selfoss 0-2 KA
0-1 Ásgeir Sigureirsson ('13)
0-2 Hallgrímur Mar Steingrímsson ('45)
Leiknir 1-0 Haukar
1-0 Elvar Páll Sigurðsson
HK 2 - 0 Fram
1-0 Hákon Ingi Jónsson ('20)
2-0 Sveinn Aron Guðjohnsen ('75)
Markaskorarar af urslit.net
Athugasemdir