Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
Haraldur Freyr: Leikurinn spilast eins og við vildum
Höskuldur: Fannst þeir ofan á í grunnatriðum leiksins
Sami Kamel: Þurftum bara að beisla þessa jákvæðu orku
Dóri Árna: Ótrúlega andlaust og ekki líkt liðinu sem ég þekki
Hallgrímur Jónasson: Við stöndum saman sem lið
Árni Freyr: Mér fannst þetta vera víti
Breki Baldurs: Ég er mjög hrifinn af þessu kerfi
Arnar Gunnlaugs: Ótrúlegasta mark sem ég hef séð á þessum velli
Sveinn Þór: Ég held að við höfum aðeins sjokkerað þá pínulítið
Baldvin Borgars: Virkilega sáttur með frammistöðuna hjá mínum mönnum
Rúnar Kristins: Þeir lögðu mikla vinnu í þetta og veittu okkur mjög erfiðan leik
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
   fös 30. desember 2016 13:15
Magnús Már Einarsson
„Margir sem myndu borga sig inn á þessa fundi"
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Kvikmyndin „Jökullinn logar" sem fjallar um leið íslenska landsliðsins á Evrópumótið er komin á DVD. Með myndinni fylgja 120 mínútur af aukaefni.

Hér að ofan má sjá landsliðsmenn tala um fundina sem eru fyrir leiki liðsins.

„Mér finnst þetta ekkert leiðinlegt," segir markvörðurinn Hannes Þór Halldórsson.

„Ef maður hugsar nokkur ár aftur í tímann, hvað ég hefði gefið fyrir að vera í innsta hring í landsliðinu og sjá hvað er verið að tala um. Það eru margir sem myndu borga sig inn á þessa fundi, bara til að fá að upplifa þá."

Meira um DVD diskinn - „Jökullinn logar"
„Eftir tveggja ára tökur með landsliðinu í knattspyrnu stóðum við uppi með 200-300 klst af myndefni. Eftir gríðarlega klippivinnu sem Sævar Guðmundsson og Úlfur Teitur Traustason báru hitann og þungan af stóð fyrsta útgáfa af kvikmyndinni Inside a Volcano / Jökullinn logar í fjórum og hálfri klukkustund," segir Sölvi Tryggvason, sem fylgdi strákunum í gegnum undankeppnina, á Facebook-síðu sinni.
„Til þess að allar þessar myndir, töku- og klippivinna, færu ekki algjörlega í súginn var bara einn kostur í stöðunni - en það var að koma þessu á DVD. Þar eru margar sögur sem sem einfaldlega verða að vera til, fyrir utan þá staðreynd að við erum enn að reyna að koma myndinni réttum megin við núllið."

Klippan hér að ofan er meðal þess efnis sem finna má sem aukaefni á DVD-disknum.

Sjá einnig:
Eiður Smári náði að bregða landsliðsmönnum
Elmari skipað í klippingu og á djammið
Eiður Smári: Felldi tár og hringdi í mömmu
Raggi Sig: Verð pirraður að horfa á fótbolta
Raggi Sig: Var alltaf að atast í van Persie
Aron lýsir atburðarásinni eftir viðtalið í Albaníu
„Það verða engir skandalar, fyllerí og bull"
Athugasemdir
banner
banner