Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 31. ágúst 2016 22:22
Alexander Freyr Tamimi
David Luiz snýr aftur til Chelsea (Staðfest)
David Luiz er mættur aftur.
David Luiz er mættur aftur.
Mynd: Getty Images
Brasilíumaðurinn David Luiz er genginn til liðs við Chelsea á nýjan leik frá Paris Saint-Germain, en þetta staðfesti Lundúnaliðið á Twitter síðu sinni rétt í þessu.

Luiz spilaði 81 leik fyrir Chelsea og skoraði í þeim fjögur mörk áður en hann skipti yfir til PSG sumarið 2014, þar sem hann lék tvö tímabil.

Chelsea bauð um 30 milljónir punda í Luiz en PSG vildi meira og er talið að kaupverðið hafi á endanum numið 34 milljónum punda. PSG keypti Luiz á 50 milljónir punda frá Chelsea fyrir tveimur árum.




Frægt er þegar Luiz tryggði PSG framlengingu gegn Chelsea í Meistaradeildinni á sínum gamla (og nú nýja) heimavelli og fagnaði gríðarlega, en myndband af því má sjá hér að neðan. Fróðlegt verður að sjá hvort stuðningsmenn hafi fyrirgefið honum.


Athugasemdir
banner
banner