Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 31. ágúst 2016 18:35
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Pau Lopez til Tottenham (Staðfest)
Kominn til Tottenham
Kominn til Tottenham
Mynd: Getty Images
Spænski markvörðurinn Pau Lopez er búinn að skrifa undir lánssamning við Tottenham. Hann kemur frá Espanyol á Spáni og mun leika með Spurs út þetta leiktímabil.

Lopez hefur verið orðaður við Tottenham upp á síðkastið og nú er hann mættur til Lundúna.

Hann kemur til með að berjast við Michel Vorm um stöðuna í markinu hjá Tottenham, en aðalmarkvörðurinn Hugo Lloris hefur verið að glíma við meiðsli.

Lopez er annar leikmaðurinn sem Tottenham fær á skömmum tíma, en vængmaðurinn Georges-Kevin Nkoudou kom samdi við félagið nú áðan.



Athugasemdir
banner
banner
banner