Fotbolti.net

Leita

Leita í fréttum

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.

Leitarhamur

Dagsetning

Ef ekkert leitarorð er slegið inn notar síðan dagsetninguna sem einfalt fréttasafnsfilter.

Niðurstöður

Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25102 niðurstöðum.

Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Niðurstöður

FRÉTTIR30.09.2025, 06:00

Shelvey kominn til Dúbaí (Staðfest)

Enski miðjumaðurinn Jonjo Shelvey er búinn að skipta yfir til Dúbaí þar sem hann skrifar undir samning við Arabian Falcons FC.

FRÉTTIR29.09.2025, 17:30

Kom vel inn í lið Hauka og skiptir alfarið til félagsins (Staðfest)

Haukar greindu frá því í gær að Sigurður Hrannar Þorsteinsson væri búinn að skrifa undir samning við félagið en hann gekk í raðir þess á láni frá Kára í sumarglugganum. Skagamaðurinn, sem er fæddur árið 2000, skoraði fimm mörk í níu leikjum í 2. deild og hefur nú skrifað undir þriggja ára samning á Ásvöllum. Alls endaði hann með tíu mörk í deildinni því hann skoraði líka fimm mörk fyrir Kára fyrri hlutann. Á ferli sínum hefur Sigurður leikið með Gróttu, ÍA, Ægi og Völsungi og skorað 50 mörk í 166 leikjum.

FRÉTTIR29.09.2025, 07:00

Sá besti í 3. deild fer heim í Hauka (Staðfest)

Haukar voru að semja við unga og efnilega leikmenn sína á dögunum auk þess að næla sér aftur í Ólaf Darra Sigurjónsson sem átti magnað sumar með Reyni Sandgerði í 3. deildinni.

FRÉTTIR28.09.2025, 13:50

Gunnar Heiðar hættur með Njarðvík (Staðfest)

Gunnar Heiðar Þorvaldsson er hættur sem þjálfari Njarðvíkur en í tilkynningu frá félaginu segir að tekin hafi verið sameiginleg ákvörðun um að hefja ekki viðræður um áframhaldandi samstarf. Fróðlegt verður að sjá hvert næsta skref á þjálfaraferli Gunnars verður en lið í Bestu deildinni eru með augu á honum auk þess sem sögusagnir hafa verið um að hann gæti farið Skandinavíu í starf.

FRÉTTIR27.09.2025, 14:01

Nuno tekinn við West Ham (Staðfest)

West Ham United hefur tilkynnt ráðningu á nýjum stjóra en Portúgalinn Nuno Espirito Santo skrifaði í dag undir þriggja ára samning við félagið.

FRÉTTIR27.09.2025, 10:22

Potter rekinn frá West Ham (Staðfest)

Enska stjóranum Graham Potter hefur verið vikið úr störfum hjá enska úrvalsdeildarfélaginu West Ham United eftir aðeins níu mánuði í starfi.

FRÉTTIR26.09.2025, 13:10

Arnar Grétars mun ekki halda áfram með Fylki (Staðfest)

Arnar Grétarsson verður ekki áfram þjálfari Fylkis eftir að samningur hans rennur út í næstu viku. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Árbæjarliðinu. Fylki var spáð sigri í Lengjudeild karla í sumar en sumarið var liðinu mjög erfitt og það var í fallbaráttu. Arnar tók við á miðju tímabili eftir að Árni Freyr Guðnason var rekinn.

FRÉTTIR26.09.2025, 10:16

Frá Val í hollensku úrvalsdeildina (Staðfest)

Ragnheiður Þórunn Jónsdóttir hefur verið lánuð frá Val til hollenska félagsins PEC Zwolle sem spilar í úrvalsdeildinni þar í landi. Ragnheiður, sem er sóknarsinnaður leikmaður, verður í Hollandi framyfir áramót og út tímabilið. Hún verður því ekki með Val í síðustu fjórum leikjum tímabilsins. Ragnheiður Þórunn er fædd árið 2007, á að baki 37 unglingalandsleiki og var á sínu öðru tímabili með Val eftir að hafa komið frá uppeldisfélaginu Haukum.

FRÉTTIR25.09.2025, 17:30

Öflugt teymi tekur við Árborg (Staðfest) - Náðu frábærum árangri 2010

Árborg hefur gengið frá þjálfararáðningu fyrir tímabilið 2026. Adólf Bragason og Njörður Steinarsson taka við liðinu, sem leikur í 4. deild karla. Þeir taka við af Tomasz Luba sem þjálfaði liðið síðustu fjögur tímabil. Í sumar endaði Árborg í 3. sæti 4. deildar og var liðið þremur stigum frá sæti í 3. deild. Bæði Adólf og Njörður þekkja vel til Árborgar. Adólf stýrði liðinu 2008-2010 og stýrði liðinu upp í 2. deild 2010 sem er besti árangur í sögu félagsins. Njörður spilaði með liðinu á sínum tíma, var einmitt lykilmaður í liðinu 2010.

FRÉTTIR19.09.2025, 12:05

Gaui Lýðs tekur við Haukum (Staðfest)

Guðjón Pétur Lýðsson hefur verið ráðinn þjálfari meistaraflokks karla til tveggja ára. Hann tekur við af Ian Jeffs sem hætti í lok tímabils eftir tvö ár í starfi. Guðjón Pétur er uppalinn Haukamaður og þekkir því mjög vel til á Ásvöllum. Hann hefur verið leikmaður liðsins undanfarin tvö tímabil og var einnig leikmaður meistaraflokks tímabilið 2006 og aftur tímabilin 2009 og 2010. Hann er að leggja fótboltaskóna á hilluna og tekur þjálfaramappan við. Á sínum leikmannaferli vann Gaui tvennuna í Svíþjóð sem leikmaður Helsingborg og vann tvo Íslandsmeistaratitla og einn bikartitil með Val. Alls skoraði hann 105 mörk í 520 KSÍ leikjum.

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.