Erkifjendur á eftir Branthwaite - Atlético á eftir Greenwood - Tekur Potter við Man Utd?
   sun 28. september 2025 13:50
Elvar Geir Magnússon
Gunnar Heiðar hættur með Njarðvík (Staðfest)
Lengjudeildin
Gunnar Heiðar Þorvaldsson.
Gunnar Heiðar Þorvaldsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Gunnar Heiðar Þorvaldsson er hættur sem þjálfari Njarðvíkur en í tilkynningu frá félaginu segir að tekin hafi verið sameiginleg ákvörðun um að hefja ekki viðræður um áframhaldandi samstarf.

Fróðlegt verður að sjá hvert næsta skref á þjálfaraferli Gunnars verður en lið í Bestu deildinni eru með augu á honum auk þess sem sögusagnir hafa verið um að hann gæti farið Skandinavíu í starf.

Fréttatilkynning Njarðvíkur
Gunnar Heiðar Þorvaldsson ekki áfram með Njarðvík
Samningur Gunnars Heiðars við Njarðvík er að renna út og hefur verið tekin sameiginleg ákvörðun um að hefja ekki viðræður um áframhaldandi samstarf.

Gunnar Heiðar tók við Njarðvíkurliðinu um mitt tímabil 2023. Með góðum endaspretti náði liðið að halda sæti sínu í Lengjudeildinni og gerðu Gunnar og Njarðvík með sér tveggja ára áframhaldandi samning.

Árið 2024 jafnaði liðið besta árangur Njarðvíkur í Lengjudeild sem var þá 6. sæti.

Sett voru skýr markmið að bæta besta árangur félagsins sem tókst þar sem liðið endaði í 2. sæti Lengjudeildarinnar, og fór í umspilið þar sem við því miður lutum í lægra haldi gegn Keflavík.

„Stjórn knattspyrnudeildar þakkar Gunnari innilega fyrir gott og árangursríkt samstarf síðastliðin 2 og hálft ár.
Stjórn Knattspyrnudeildar Njarðvíkur óskar Gunnari jafnframt velfarnaðar og góðs gengis í framtíðinni.”

Lengjudeild karla
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    Þór 22 14 3 5 51 - 31 +20 45
2.    Njarðvík 22 12 7 3 50 - 25 +25 43
3.    Þróttur R. 22 12 5 5 43 - 37 +6 41
4.    HK 22 12 4 6 46 - 29 +17 40
5.    Keflavík 22 11 4 7 53 - 39 +14 37
6.    ÍR 22 10 7 5 38 - 27 +11 37
7.    Völsungur 22 7 4 11 36 - 52 -16 25
8.    Fylkir 22 6 5 11 34 - 32 +2 23
9.    Leiknir R. 22 6 5 11 24 - 40 -16 23
10.    Grindavík 22 6 3 13 38 - 61 -23 21
11.    Selfoss 22 6 1 15 25 - 44 -19 19
12.    Fjölnir 22 3 6 13 32 - 53 -21 15
Athugasemdir
banner