
Ólafur Kristjánsson lætur af störfum sem þjálfari kvennaliðs Þróttar eftir þetta tímabil og mun taka við sem aðstoðarþjálfari kvennalandsliðsins, en þetta kemur fram í tilkynningu frá Þrótti í dag.
Ólafur tók við Þrótti haustið 2023 og tekist að festa liðið í sessi sem eitt af bestu liðum Bestu deildarinnar.
Þetta verður hans síðasta tímabil sem þjálfari Þróttar en þegar því lýkur mun hann aðstoða Þorstein Halldórsson, þjálfara kvennalandsliðsins.
Einnig mun hann sinna þróun og stefnumótun hjá yngri landsliðum kvenna og verkefnum tengdum fræðslumálum hjá KSÍ.
„Þróttur þakkar Ólafi kærlega fyrir hans störf og þann metnað sem hann hefur sýnt og óskar honum velfarnaðar í nýjum og spennandi verkefnum hjá KSÍ. Félagið lítur á það sem viðurkenningu fyrir áherslu sína á kvennaknattspyrnu að leitaði sé til Þróttar eftir landsliðsþjálfara,“ segir í yfirlýsingu Þróttar.
Leitin að eftirmanni Ólafs er hafin og verður tilkynnt um niðurstöðu hennar þegar þar að kemur.
Athugasemdir