Fotbolti.net

Leita

Leita í fréttum

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.

Leitarhamur

Dagsetning

Ef ekkert leitarorð er slegið inn notar síðan dagsetninguna sem einfalt fréttasafnsfilter.

Niðurstöður

Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25103 niðurstöðum.

Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Niðurstöður

FRÉTTIR23.08.2025, 16:21

Eberechi Eze til Arsenal (Staðfest)

Enska félagið Arsenal hefur staðfest kaupin á Eberechi Eze en hann kemur frá Crystal Palace fyrir 67,5 milljónir punda.

FRÉTTIR23.08.2025, 09:00

Inter fær miðjumann frá Lens (Staðfest)

Franski miðjumaðurinn Andy Diouf er genginn til liðs við Inter frá Lens. Kaupverðið er 25 milljónir evra. Hann skrifar undir fimm ára samning við ítalska félagið.

FRÉTTIR23.08.2025, 06:00

2. deild kvenna: Selfoss upp í Lengjudeildina (Staðfest)

Selfoss tryggði sér sæti í Lengjudeildinni með stórsigri á Völsungi á Húsavík í gær. Guðmunda Brynja Óladóttir skoraði þrennu og Sara Rún Auðunsdóttir og Björgey Njála Andreudóttir skoruðu sitt markið hver í 5-0 sigri. Selfoss er með 40 stig á toppnum, 13 stigum á undan Völsungi sem er í 3. sæti þegar níu stig eru eftir í pottinum. ÍH er fimm stigum á eftir Selfossi eftir stórsigur á Fjölni en ALma Mathiesen skoraði þrennu í 7-2 sigri.

FRÉTTIR22.08.2025, 20:23

Alex Moreno frá Aston Villa til Girona (Staðfest)

Alex Moreno er genginn til liðs við Girona frá Aston Villa. Kaupverðið er óuppgefið. Moreno er 32 ára gamall Spánverji og spilar sem vinstri bakvörður en hann var fyrsti leikmaðurinn sem Unai Emery fékk til liðsins í janúar 2023. Hann kom frá Real Betis og kostaði Villa 13,2 milljónir punda.

FRÉTTIR22.08.2025, 09:28

Torino fær Asllani frá Inter

Albanski miðjumaðurinn Kristjan Asllani hefur kosið að fara til Torino frekar heldur en Bologna eftir að bæði lið reyndu að krækja í hann í sumar.

FRÉTTIR21.08.2025, 23:03

Douglas Luiz til Forest (Staðfest)

Brasilíski miðjumaðurinn Douglas Luiz er genginn í raðir Nottingham Forest frá Juventus. Samningurinn er á formi lánsdvalar í eitt ár með skilyrtum skuldbindingum um kaup sem verða framkvæmd næsta sumar.

FRÉTTIR21.08.2025, 15:10

Tveir leikmenn í Bayer Leverkusen (Staðfest)

Argentínumaðurinn efnilegi, Claudio Echeverri, er genginn í raðir Bayer Leverkusen á láni frá Manchester City. Franski miðvörðurinn Loic Bade skrifaði líka undir á sama tíma en hann er keyptur frá Sevilla. Þýska félagið staðfesti þessi tíðindi í dag.

FRÉTTIR21.08.2025, 11:30

Noah Okafor frá AC Milan í Leeds (Staðfest)

Leeds hefur gengið frá kaupum á svissneska framherjanum Noah Okafor frá AC Milan. Hann skrifar undir fjögurra ára samning við Leeds en kaupverðið er um 18 milljónir punda.

FRÉTTIR21.08.2025, 09:00

Amine Adli til Bournemouth (Staðfest)

Bournemouth hefur keypt miðjumanninn Amine Adli frá Bayer Leverkusen fyrir rúmar 25 milljónir punda. Þessi 25 ára leikmaður gerir fimm ára samning. Adli er landsliðsmaður Marokkó og býr yfir fjölhæfni. Hans aðalstaða er sem sóknarmiðjumaður en hann getur einnig spilað á báðum köntum eða sem fremsti maður.

FRÉTTIR20.08.2025, 10:00

Bailey kynntur hjá Roma (Staðfest)

Kantmaðurinn Leon Bailey er genginn í raðir ítalska félagsins Roma frá Aston Villa. Hann kemur á lánssamningi en Roma er með ákvæði um að geta keypt hann að tímabilinu loknu. Í tilkynningu frá Roma segir að Bailey sé fyrsti Jamaíkamaðurinn í sögu félagsins. Bailey fæddist í Kingston en fluttist til Evrópu þrettán ára gamall og hefur spilað fyrir Genk, Bayer Leverkusen og Aston Villa.

FRÉTTIR19.08.2025, 18:40

Alexander Rafn til Nordsjælland næsta sumar (Staðfest)

<p>Alexander Rafn Pálmason leikmaður KR fer til FC Nordsjælland sumarið 2026, en það kemur fram í fréttatilkynningu frá KR. Hann skrifar undir þriggja ára samning, en ástæðan fyrir því að hann fer ekki strax er sú að leikmenn þurfa að vera orðnir 16 ára gamlir til þess að skipta yfir í erlent lið.</p>

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.