Wrexham AFC er búið að ganga frá kaupum á Callum Doyle frá Manchester City. Kaupverðið getur náð allt að 8 milljónum punda með árangurstengdum aukagreiðslum.
Doyle er 21 árs gamall og gerir fjögurra ára samning við Wrexham, en hann leikur sem miðvörður og getur einnig spilað sem vinstri bakvörður.
Á síðustu leiktíðum hefur hann farið upp um deild á láni hjá Southampton og Leicester, fyrst upp úr League One og svo Championship.
Hann var mikilvægur hlekkur í sterku liði Norwich á síðustu leiktíð og vann EM U19 ára landsliða með Englandi 2022. Hann á fimm leiki að baki fyrir U21 liðið en var ekki með á EM í sumar.
„Ég er mjög spenntur að ganga til liðs við Wrexham. Ég hef viljað skipta um félag í góðan tíma og get ekki beðið eftir að reyna fyrir mér á nýjum stað. Ég hef verið að fylgjast með Wrexham úr fjarlægð og er mjög spenntur að taka þátt í áhugaverðri vegferð þessa sögufræga félags," sagði Doyle meðal annars við undirskriftina.
Wrexham hefur verið i mikilli sókn eftir að leikararnir Rob McElhenney og Ryan Reynolds keyptu félagið.
A fresh pour of bold. Callum Doyle joins the squad.
— Wrexham AFC (@Wrexham_AFC) August 21, 2025
?????? #WxmAFC
Athugasemdir


