Ólafur Karl Finsen skiptir í 4. deild (Staðfest)
Sóknarmaðurinn Ólafur Karl Finsen hefur fengið félagaskipti í KH sem er í toppbaráttu í 4. deild. KH er venslafélag Vals þar sem Ólafur Karl lék nokkra leiki á síðasta tímabili.
Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.
Niðurstöður
Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25106 niðurstöðum.
Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.
Sóknarmaðurinn Ólafur Karl Finsen hefur fengið félagaskipti í KH sem er í toppbaráttu í 4. deild. KH er venslafélag Vals þar sem Ólafur Karl lék nokkra leiki á síðasta tímabili.
Orri Hrafn Kjartansson er genginn til liðs við KR frá Val. Hann skrifar undir samning sem gildir út tímabilið 2028. Orri Hrafn er 23 ára fjölhæfur miðjumaður sem uppalinn er hjá Fylki en hefur verið hjá Val frá því hann var keyptur frá uppeldisfélaginu fyrir tímabilið 2022. Hann fór ungur að árum til Heerenveen í Hollandi og lék alls 25 leiki fyrir yngri landsliðin. Hann kom við sögu í 20 leikjum með Val 2022 og 24 leikjum 2023. Í fyrra lék hann tíu leiki með Fylki á láni áður en hann svo lék fimm leiki með Val, en veikindi settu strik í reikninginn hjá honum í fyrra. Á þessu tímabili hefur hann komið við sögu í 14 af 16 deildarleikjum Vals, en einungis byrjað fimm þeirra.
Nelson Semedo er genginn til liðs við Fenerbahce á frjálsri sölu eftir að samningur hans við Wolves rann út. Semedo er 31 árs gamall portúgalskur hægri bakvörður. Hann gekk til liðs við Wolves frá Barcelona árið 2020 en hann lék 182 leik fyrir enska liðið.
Fótbolti.net greindi frá því í gær að Alfreð Finnbogason hafi fengið félagaskipti yfir í Augnablik sem leikur í 3. deildinni. Fleiri áhugaverð nöfn hafa tekið sama skref og eru með leikheimild frá og með deginum í dag.
Hinn 36 ára gamli Pierre Emerick-Aubameyang er genginn til liðs við Marseille frá Al-Qadisah í Sádi-Arabíu. Hann skrifar undir tveggja ára samning. Aubameyang þekkir vel til í Marseille en hann gekk til liðs við Al-Qadisah frá franska félaginu fyrir ári síðan.
Samantha Leshnak Murphy, fyrrum markvörður Keflavíkur, hefur samið við sænsku meistarana í Rosengård. Hún er að snúa aftur í sænskan fótbolta en hún spilaði með Piteå 2023 og 2024. Undanfarna mánuði hefur hún leikið með Carolina Ascent í Bandaríkjunum.
Enski miðvörðurinn Rob Holding er genginn í raðir Colorado Rapids í Bandaríkjunum. Holding mun því spila í sama landi og kærasta hans, landsliðskonan Sveindís Jane Jónsdóttir sem spilar fyrir Angel City. Þess má geta að það tekur um tvo tíma að fljúga frá Los Angeles til Colorado.
Brasilíski miðjumaðurinn Lucas Paqueta hefur verið sýknaður í máli sínu gagnvart enska fótboltasambandinu. Paqueta var á síðasta ári ákærður af enska fótboltsambandinu fyrir brot á veðmálareglum. Hann var sakaður um að hafa fengið viljandi áminningar til að hafa áhrif á veðmál.
Alfreð Finnbogason hefur fengið félagaskipti yfir í Augnablik, venslafélag Breiðabliks. Alfreð lagði skóna á hilluna í fyrra eftir glæstan feril en það er spurning hvort að hann muni dusta rykið af þeim til að leika sér með Augnabliki í 3. deildinni.
Chelsea hefur lánað hinn bráðefnilega Kendry Paez til Strasbourg út komandi keppnistímabil. Chelsea og Strasbourg eru í eigu sömu aðila og þarna fara margir leikmenn á milli. Markvörðurinn Mike Penders er líka á láni hjá Strasbourg frá Chelsea.
Nottingham Forest hefur fest kaup á kantmanninum Dan Ndoye frá Bologna fyrir 34 milljónir punda. Napoli hafði einnig áhuga á Ndoye en hann var spenntari fyrir því að fara í ensku úrvalsdeildina og ákvað að skrifa undir hjá Forest.
Vestri hefur fengið vængmanninn Johannes Selvén frá Utsiktens BK í Svíþjóð. Utsiktens spilar í B-deildinni (Superettan) og mun Selvén gera þriggja ára samning samkvæmt tilkynningu frá Ísafirði.
Markvörðurinn Arnar Freyr Ólafsson er kominn til KR þar sem hann mun keppa um stöðuna í marki Vesturbæjarliðsins við Halldór Snæ Georgsson.
Franski miðjumaðurinn Thomas Lemar er genginn í raðir Girona á láni frá Atlético Madríd.
Spænska félagið Celta Vigo hefur nælt í Bryan Zaragoza á láni frá Bayern München.
Varnarmaðurinn ungi og efnilegi, Davíð Leó Lund, framlengdi samning sinn við Völsung í dag til 2027 og var síðan í kjölfarið lánaður til Tindastóls.
Skagakonur hafa styrkt sig fyrir seinni hluta Íslandsmótsins en þær Berta Sóley Sigtryggsdóttir, Inga Ragnarsdóttir og Tinna Björk Helgadóttir eru allar komnar til félagsins.
Franska félagið Strasbourg hefur fest kaup á enska varnarmanninum Ishe Samuels-Smith frá Chelsea fyrir 6,5 milljónir punda.
Tyrkneska félagið festi kaup á nígeríska framherjanum Victor Osimhen fyrir metfé í kvöld en hann kemur til félagsins frá Napoli. Þúsundir manna tóku á móti Osimhen á flugvellinum sem skrifaði undir langtímasamning.
Dalvík/Reynir hefur sótt hinn afar öfluga Nikola Kristinn Stojanovic frá KFA.