Reading fær Casadei frá Chelsea (Staðfest)

Championship félagið Reading er búið að staðfesta komu ítalska miðjumannsins Cesare Casadei á lánssamningi frá Chelsea sem gildir út tímabilið.

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.
Niðurstöður
Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25202 niðurstöðum.
Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Championship félagið Reading er búið að staðfesta komu ítalska miðjumannsins Cesare Casadei á lánssamningi frá Chelsea sem gildir út tímabilið.

María Catharina Ólafsdóttir Gros er búin að skrifa undir samning við hollenska úrvalsdeildarfélagið Fortuna Sittard.

Árni Marinó Einarsson skrifaði í dag undir nýjan samning við ÍA sem gildir út tímabilið 2025. Árni verður 21 árs í næsta mánuði og hefur spilað 23 leiki í efstu deild fyrir ÍA auk sex leikja í bikarnum. Samkvæmt heimildum Fótbolta.net hafði KR áhuga á því að fá Árna Marinó í sínar raðir en hann verður áfram á Skaganum og verður aðalmarkmaður ÍA á komandi tímabili. Dino Hodzic, sem varið hefur mark Kára, verður varamarkmaður. Hann og Árni Snær Ólafsson vörðu mark ÍA á síðasta tímabili, Árni Snær varði markið í sautján leikjum og Árni Marinó stóð vaktina í tíu leikjum.
Brighton hefur staðfest kaup á sænska landsliðsmanninum Yasi Ayari frá AIK í Svíþjóð. Ayari er nítján ára gamall og er keyptur á um 3,5 milljónir punda. Hann var sautján ára gamall þegar hann lék sinn fyrsta leik fyrir AIK og á síðasta tímabili skoraði hann fjögur mörk í 24 deildarleikjum.
Joao Gomes er genginn í raðir Wolves frá brasilíska félaginu Flamengo. Brassinn skrifar undir fimm og hálfs árs samning við Úlfana. Wolves greiðir um 17 milljónir punda fyrir miðjumanninn. Hann er 21 árs og er fimmtii leikmaðurinn sem Wolves fær í glugganum. Áður höfðu þeir Matheus Cunha, Mario Lemina, Craig Dawson og Pablo Sarabia gengið í raðir Wolves í janúar.
Everton hefur tilkynnt um ráðningu á stjóranum Sean Dyche. Hann tekur við starfinu af Frank Lampard og skrifar undir tveggja og hálfs árs samning.
ÍBV hefur fengið öflugan liðsstyrk fyrir komandi tímabil í Bestu deildinni því Kristjana Sigurz er gengin í raðir félagsins. Kristjana skrifar undir samning sem gildir út komandi tímabil.
Hinn 21 árs gamli miðjumaður Ivan Ilic er genginn í raðir Torino frá Hellas Verona. Þessi serbneski miðjumaður var í herbúðum Manchester City en gekk í raðir Hellas Verona 2020.
Spezia hefur staðfest komu Eldor Shomurodov, sóknarmanns Roma, sem en þessi 27 ára Úsbeki kemur á láni út tímabilið. Shomurodov hefur verið í afskaplega litlu hlutverki undir stjórn Jose Mourinho á þessu tímabili, hann er bara með eitt mark í 151 spilmínútu í ítölsku A-deildinni og Evrópudeildinni. Hann hefur átt í vandræðum með að sýna sitt besta í ítölsku höfuðborginni og aðeins skorað sex mörk í 48 leikjum.
Selfoss hefur krækt í bandarískan markvörð sem mun leika með félaginu í Bestu deild kvenna næsta sumar. Markvörðurinn heitir Amanda Leal og er fædd árið 1999.

Írski sóknarmaðurinn Michael Obafemi er kominn til Burnley á lánssamningi frá Swansea City sem gildir út tímabilið með kaupmöguleika.

Watford er búið að staðfesta komu Britt Assombalonga á fimm mánaða samningi með möguleika á eins árs framlengingu.

Vestri var rétt í þessu að tilkynna félagsskipti Benedikts V. Warén til félagsins. Benedikt, sem er fæddur 2001 og spilaði 20 leiki á láni hjá ÍA í Bestu deildinni í fyrra, gerir þriggja ára samning við Vestra.

Azzedine Ounahi er loksins búinn að skipta um félag eftir svakalegan janúarglugga.

Hinn 22 ára gamli Anthony Gordon er búinn að skrifa undir samning sem nýr leikmaður Newcastle United en þetta staðfesti félagið.

Mateus Tete er genginn til liðs við Leicester City en þetta staðfesti félagið rétt í þessu.

Hinn 19 ára gamli Malo Gusto er búinn að skrifa undir samning við Chelsea en það var staðfest rétt í þessu.

FC Kaupmannahöfn er búið að staðfesta lánssamning við Jordan Larsson, son sænsku goðsagnarinnar Henrik Larsson sem lék meðal annars fyrir Celtic, Barcelona og Manchester United.

Varnarsinnaði miðjumaðurinn Morgan Schneiderlin, sem á 15 landsleiki að baki fyrir Frakkland og lék fyrir Southampton, Manchester United og Everton í ensku úrvalsdeildinni, er genginn til liðs við Sydney Wanderers í ástralska boltanum.

Franska félagið Lorient er búið að styrkja sig á lokadögum janúargluggans. Lorient komst upp í efstu deild fyrir tveimur og hálfu ári síðan og hefur síðan þá verið fallbaráttulið í Ligue 1.