FRÉTTIR05.12.2025, 19:37
Árni Elvar Árnason er genginn aftur til liðs við Leikni en hann kemur frá Fjölni. Hann kemur til með að vera leikmaður liðsins ásamt því að vera aðstoðarþjálfari 2. flokks.
Árni Elvar er fæddur árið 1996 og er uppalinn í Leikni. Hann gekk til liðs við Þór í fyrra og spilaði með liðinu í Lengjudeildinni. Hann færði sig til Fjölnis fyrir síðasta tímabil og spilaði 10 leiki þegar liðið féll úr Lengjudeildinni.
FRÉTTIR05.12.2025, 10:37
Norðmaðurinn Jörgen Pettersen er genginn í raðir bandaríska félagsins Sarasota Paradise eftir að hafa spilað með ÍBV á síðasta tímabili.
Það var hans fimmta tímabil á Íslandi en áður hafði hann spilað tvö tímabil með ÍR og tvö með Þrótti.
Meiðsli settu strik í reikninginn hjá miðjumanninum sem kom einungis við sögu í tíu leikjum í deild og bikar.
FRÉTTIR04.12.2025, 23:37
Sigurjón Daði Harðarson er búinn að skrifa undir samning við Fram eftir að hafa verið hjá Fjölni alla tíð.
FRÉTTIR04.12.2025, 18:05
Halla Bríet Kristjánsdóttir er búin að gera tveggja ára samning við Þór/KA sem leikur í Bestu deild kvenna.
FRÉTTIR04.12.2025, 13:43
Adam Árni Róbertsson hefur verið keyptur til Reykjavíkur Þróttara frá Grindavík. Hann hefur leikið með Njarðvík, Keflavík, Þrótti Vogum og Grindavík á sínum meistaraflokksferli.
Framherjinn er 26 ára og kemur til Þróttar eftir að hafa skorað fjórtán mörk í Lengjudeildinni með Grindavík á síðasta tímbili.
<i>„Framherjinn Adam Árni hefur skrifað undir samning við Þrótt en hann kemur til félagsins frá Grindavík þar sem hann hefur spilað síðustu tvö tímabil við góðann orðstír en hann gerði 14 mörk í 19 leikjum á síðasta tímabili,"</I> segir í tilkynningu Þróttar.
Hann er annar leikmaðurinn sem Þróttur fær í vetur. Þróttur fékk markmanninn Aron Dag Birnuson á láni frá Stjörnunni um síðustu helgi. Þróttarar eru greinilega stórhuga, ætla sér stóra hluti í Lengjudeildinni næsta sumar.
FRÉTTIR04.12.2025, 06:00
Celtic hefur staðfest að Wilfried Nancy er tekinn við liðinu af Martin O'Neil. Hann skrifar undir tveggja og hálfs árs samning.
Nancy kemur til Celtic frá bandaríska félaginu Columbus Crew en hann vann tvo titla við stjórnvölin hjá félaginu. Þá var hann þjálfari ársins í fyrra.
FRÉTTIR03.12.2025, 22:37
ÍBV tilkynnti rétt í þessu að Þorlákur Árnason hefur sagt upp störfum hjá félaginu.
Þetta kemur gríðarlega á óvart en hann tók við liðinu í fyrra af Hermanni Hreiðarssyni sem stýrði liðinu til sigurs í Lengjudeildinni.
FRÉTTIR03.12.2025, 13:25
Murielle Tiernan er gengin í raðir Stjörnunnar en bandaríski markahrókurinn kemur til félagsins frá Fram. Fótbolti.net greindi frá yfirvofandi skiptum á föstudag og voru þau tilkynnt í dag.
Murielle, sem er þrítug, var markahæsti leikmaður Fram á síðasta tímabili, skoraði ellefu mörk í 21 leik í Bestu deildinni. Hún var líka markahæsti leikmaður liðsins 2024 þegar liðið fór upp úr Lengjudeildinni. Hún lék hjá Fram undir stjórn Óskars Smára Haraldssonar sem tók við liði Stjörnunnar í síðasta mánuði. Þau unnu einnig saman hjá Tindastóli tímabilið 2021.
FRÉTTIR02.12.2025, 15:07
Miðjumaðurinn Heiða Ragney Viðarsdóttir hefur yfirgefið Íslands- og bikarmeistara Breiðabliks og gert tveggja ára samning við sænska félagið Eskilstuna United.
FRÉTTIR02.12.2025, 12:30
Þær Emma Kate Young og Ashley Brown Orkus hafa skrifað undir áframhaldandi samninga við Fram og verða með liðinu í Bestu deildinni á komandi tímabili.
Emma er hafsent, fædd 2000, sem kom til Grindavíkur fyrir tímabilið 2024. Hún skipti svo til Filippseyja eftir síðasta tímabil en sneri aftur í Fram í sumar og spilaði níu síðustu leikina. Hún þekkir vel til Antons Inga Rúnarssonar, þjálfara Fram, en þau unnu saman hjá Grindavík.
FRÉTTIR02.12.2025, 10:14
Arnar Breki Gunnarsson hefur skrifað undir nýjan samning við ÍBV en fyrri samningur hans við félagið rann út í síðasta mánuði. Hann er nú samningsbundinn til næstu þriggja ára.
Arnar Breki er uppalinn Eyjamaður sem getur bæði spilað í fremstu línu og á kantinum. Hann er 23 ára og að baki 140 KSÍ leiki, alla fyrir ÍBV eða venslaliðið KFS. Í þeim hefur hann skorað 18 mörk.
Á liðnu tímabili kom hann við sögu í 21 leik og lagði samkvæmt <i>Fotmob</i> upp tvö mörk.
FRÉTTIR01.12.2025, 21:19
Sigurður Ragnar Eyjólfsson hefur verið ráðinn þjálfari færeyska liðsins NSÍ Runavík. Félagið tilkynnti þetta í kvöld á 52 ára afmælisdegi Sigga. Hann skrifar undir eins árs samning.
NSÍ hafnaði í 3. sæti færeysku deildarinnar á síðustu leiktíð en Daniel Obbekjær og Klæmint Olsen, fyrrum leikmenn Breiðabliks, og Brandur Olsen, fyrrum leikmaður FH, eru á mála hjá félaginu.
FRÉTTIR01.12.2025, 17:53
Aron Einarsson er genginn í raðir Njarðvíkur en hann kemur á frjálsri sölu frá Leikni þar sem samningur hans var runninn út. Hann skrifar undir tveggja ára samning við félagið.
Hann er þriðji leikmaðurinn sem Njarðvík fær í vetur en fyrr í þessum mánuði sömdu þeir Eiður Aron Sigurbjörnsson og Alex Freyr Elísson við Njarðvíkinga.
Aron er 23 ára miðjumaður sem uppalinn er hjá Selfossi og hafði þar til 2024 leikið allan sinn feril með uppeldisliðinu. Hann gekk í raðir Leiknis eftir tímabilið 2023 og lék 34 leiki í Lengjudeildinni með Breiðhyltingum.
FRÉTTIR01.12.2025, 17:30
Ýmir Már Geirsson hefur framlengt samning sinn við Þór út tímabilið 2026. Hann er 28 ára vinstri bakvörður sem kom til Þórs fyrir tímabilið 2023. Hann hjálpaði Þór að vinna Lengjudeildina í sumar og verður með liðinu í Bestu deildinni á næsta tímabili.
Hann lék 19 leiki í Lengjudeildinni í sumar og hefur hann nú leikið alls 55 leiki fyrir Þór en hann hefur einnig leikið með Magna, Dalvík/Reyni og fyrir uppeldisfélagið KA á meistaraflokksferli sínum.
Hann kom inn í lið Þórs í 10. umferð Lengjudeildarinnar í sumar og leit ekki um öxl, byrjaði alla leiki nema einn eftir leikinn gegn Fjölni. Sigurður Heiðar Höskuldsson, þjálfari Þórs, ræddi um Ými í viðtali fyrr í vetur.
FRÉTTIR01.12.2025, 17:00
Hulunni svipt af Loga Ólafs, Aron Jó leystur undan starfsskyldu og spjótin beindust að Arne Slot.
Hér að neðan má sjá lista yfir 20 vinsælustu fréttir Fótbolta.net í síðustu viku, raðað eftir hversu oft þær eru lesnar.
FRÉTTIR30.11.2025, 20:07
Ágúst Eðvald Hlynsson er genginn til liðs við Þór en hann snýr aftur til liðsins eftir fjórtán ára fjarveru.
Ágúst er fæddur árið 2000 en hann kemur til liðsins frá Vestra þar sem hann varð bikarmeistari í sumar. Hann er uppalinn hjá Þór en fór til Breiðabliks í 4. flokki árið 2012. Hann hefur einnig spilað með Víking, FH og Val hér á landi.
FRÉTTIR30.11.2025, 11:57
Markvörðurinn Aron Dagur Birnuson hefur verið lánaður frá Stjörnunni til Þróttar Reykjavíkur í Lengjudeildinni.
FRÉTTIR29.11.2025, 17:31
Atli Sigurjónsson er kominn aftur til Þórs en hann kemur frá KR. Hann skrifar undir tveggja ára samning.
Atli er uppalinn hjá Þór og var Íslandsmeistari með liðinu í 5. og 3. flokki. Hann hóf ferilinn með aðalliðinu aðeins 16 ára gamall og spilaði í næst efstu deild frá 2008-2010. Hann var lykilmaður í liðinu árið 2010 þegar Þór tryggði sér sæti í efstu deild.
FRÉTTIR29.11.2025, 12:39
Viktor Andri Hafþórsson er kominn aftur heim í Fjölni en hann kemur til félagsins frá Þrótti R.
FRÉTTIR29.11.2025, 12:19
Andri Rafn Yeoman, leikjahæsti leikmaður í sögu Breiðabliks, hefur gert nýjan eins árs samning við félagið.