Fotbolti.net
01.01.25 - 13:30
Brynjar Ingi Erluson

Mark Robins ráðinn stjóri Stoke (Staðfest)

Mark Robins ráðinn stjóri Stoke (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Enska B-deildarfélagið Stoke City hefur ráðið enska þjálfarann Mark Robins en hann gerir þriggja og hálfs árs samning við félagið.
Robins var látinn fara frá Coventry City í nóvember eftir að hafa stýrt liðinu í sjö ár.

Stoke lét á meðan Narcis Pelach taka poka sinn í lok desember eftir aðeins þrjá mánuði í starfi og var ekki lengi að finna eftirmann hans en Robins hefur nú verið ráðinn í hans stað.

Robins gerði þriggja og hálfs árs samning en hann er þriðji stjóri Stoke á tímabilinu.

Hann verður á hliðarlínunni er Stoke mætir Plymouth um helgina.

Stoke er í 18. sæti deildarinnar með 25 stig og aðeins unnið einn leik síðan í byrjun nóvember.

Championship - karlar

#LiðLmunStig
1Birmingham15+1429
2Middlesbrough15+1129
3Stoke City15+629
4Wolves15+828
5West Brom15+828
6Swansea15+426
7Southampton15+1424
8QPR15+624
9West Ham15+1423
10Sheffield Utd15+222
11Portsmouth15+222
12Norwich15+821
13Blackburn15-121
14Cardiff City15018
15Wrexham15-218
16Millwall15-418
17Bristol City15-818
18Bolton15-917
19Charlton Athletic15-1017
20Watford15-1015
21Lincoln City15-1115
22Burnley15-910
23Derby County15-1610
24Preston NE15-178
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.