01.02.10 - 07:27
Hafliði Breiðfjörð
Sylvain Wiltord til Metz (Staðfest)

Sylvain Wiltord.

Mynd: Getty Images

Sylvain Wiltord.

Mynd: Getty Images
Franska 2. deildarfélagið Metz staðfesti í gær að Sylvain Wiltord fyrrverandi framherji Arsenal sé genginn í raðir þeirra.
Wiltord sem er 35 ára gamall fyrrverandi franskur landsliðsmaður hefur verið félagslaus síðan hann var leystur undan samningi hjá Marseille í sumar.
Hann æfði með þriðju deildarliði Creteil fyrr í mánuðinum en vangaveltur voru um að Cannes væri á eftir honum.
Hann samdi svo við Metz sem er sem stendur í sjöunda sæti 2. deildarinnar.
Ekki var gefið upp til hversu langs tíma hann semur en talið er að það sé bara út tímabilið.

Heimild: Sky