15.11.26 - 12:00
Brynjar Ingi Erluson
Leikmaður sem Messi hefur mikið álit á fær nýjan samning

Ibrahim Maza

Mynd: EPA

Ibrahim Maza

Mynd: EPA
Bayer Leverkusen er að vinna að því að framlengja samning alsírska leikmannsins Ibrahim Maza.
Maza er einn mest spennandi ungi leikmaðurinn í Evrópuboltanum og hefur þegar tryggt sér fast sæti í liðum Leverkusen og Alsír.
Hann er aðeins tvítugur en hefur vakið mikla athygli fyrir tæknilega hæfileika sína og verið orðaður við nokkur af stærstu félögum Evrópu undanfarna mánuði.
Á dögunum vakti það athygli þegar Lionel Messi setti Maza í þriðja sæti í sínu vali fyrir Kopa-bikarinn sem efnilegasti leikmaður heims hlýtur á Ballon d'Or hátíðinni. Það var mikil viðurkenning fyrir unga leikmanninn, enda var Messi sá eini sem valdi hann meðal þriggja efstu.
Samningur Maza við Leverkusen gildir til ársins 2030, en þýska félagið vill tryggja sér krafta hans enn lengur.
BILD segir Leverkusen og Maza hafa átt í viðræðum um nýjan samning um nokkurt skeið og hefur félagið nú lagt fram formlegt tilboð. Búist er við að Maza skrifi undir nýjan samning fyrir áramót en ekkert riftunarákvæði verður í samningnum.
Barcelona og Manchester City eru sögð fylgjast grannt með gangi mála og eru tilbúin að láta til skarar skríða ef eitthvað fer úrskeiðis í samningaviðræðunum.