01.02.10 - 13:22
Magnús Már Einarsson
Edmilson til Real Zaragoza (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Real Zaragoza hefur fengið brasilíska varnar og miðjumanninn Edmilson til liðs við sig.
Þessi 33 ára gamli leikmaður hefur skrifað undir fimm mánaða samning en hann kemur frá Palmeiras í heimalandinu.
Edmilson á yfir 40 leiki með Brasilíu en hann lék með Barcelona og Villareal áður en hann fór til Palmeiras í fyrra.
Hann er sjöundi leikmaðurinn sem Zaragoza fær í mánuðinum en áður höfðu Matteo Contini, Roberto Jimenez, Adrian Colunga, Humberto Suazo, Jiri Jarosik og Eliseu komið til félagsins.
Zaragoza er í fallbaráttunni á Spáni en liðið lagði Tenerife 3-1 í gær og komst um leið úr nítjánda sæti upp í það átjánda.

Heimild: Sporting Life