Fotbolti.net
01.02.10 - 10:35
Magnús Már Einarsson

Diomansy Kamara til Celtic á láni (Staðfest)

Diomansy Kamara til Celtic á láni (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Celtic hefur fengið framherjann Diomansy Kamara á láni frá Fulham út þetta tímabil.
Celtic hefur einnig forkaupsrétt á leikmanninum þegar að lánssamningurinn rennur út í sumar.

Tony Mowbray, stjóri Celtic, þekkir vel til Kamara því að leikmaðurinn lék undir hans stjórn hjá WBA á sínum tíma.

Hinn 29 ára gamli Kamara er landsliðsmaður hjá Senegal en hann hefur skorað níu mörk í yfir 40 landsleikjum.

Hann er ekki eini leikmaðurinn sem að Celtic hefur samið við því að félagið hefur einnig fengið Paul Slane frá Motherwell.

Slane, sem er 18 ára miðjumaður, skrifaði undir fjögurra ára samning við Celtic.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.