Fotbolti.net
01.02.10 - 11:36
Magnús Már Einarsson

Geremi til Ankaragucu (Staðfest)

Geremi til Ankaragucu (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Newcastle hefur staðfest að miðjumaðurinn Geremi er farinn til Ankaragucu í Tyrklandi.
Í byrjun mánaðarins tilkynnti Ankaragucu að Geremi væri kominn til félagsins en Newcastle bar þær fréttir til baka.

Félögin hafa núna loksins komist að samkomulagi en þetta staðfesti Newcastle á heimasíðu sinni í morgun.

Geremi kom til Newcastle árið 2007 en hann náði ekki að festa sig í sessi í liðinu þar.

Geremi skrifaði undir átján mánaða samning hjá Ankaragucu en hjá félaginu mun hann hitta fyrir Darius Vassell fyrrum leikmann Manchester City.

Heimild: Sporting Life

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.