Fotbolti.net
01.02.10 - 20:30
Magnús Már Einarsson

Denilson kominn til Grikklands (Staðfest)

Denilson kominn til Grikklands (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Brasilíski kantmaðurinn Denilson hefur gert eins og hálfs árs samning við gríska félagið Kavala.
Denilson varð dýrasti knattspyrnumaður heims þegar að hann fór til Real Betis árið 1998.

Þessi 32 ára gamli leikmaður varð heimsmeistari með Brasilíu árið 2002 en síðan þá hefur ferillinn legið niður á við.

Undanfarin ár hefur Denilson flakkað á milli liða en hann var síðast á mála hjá Mang Hai Phong í Víetnam þar sem að hann lék einungis einn leik.

Í haust var Denilson að skoða þann möguleika að fara til Danmerkur en núna hefur hann samið við Kavala sem er í tíunda sæti í Grikklandi.

Heimild: AP

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.