Fotbolti.net
01.02.10 - 11:42
Magnús Már Einarsson

Nyron Nosworthy til Sheffield United (Staðfest)

Nyron Nosworthy til Sheffield United (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Sheffield United hefur fengið varnarmanninn Nyron Nosworthy á láni frá Sunderland.
Portsmouth hafði einnig áhuga á Nosworthy en talið er að félagið hafi ekki náð samningum við leikmanninn.

Hinn 29 ára gamli Nosworthy hefur spilað talsvert með Sunderland á tímabilinu en eftir að Matt Kilgallon kom til félagsins var ljóst að tækifærunum myndi fækka.

Því ákvað Steve Bruce, stjóri Sunderland, að leyfa Nosworthy að fara á láni og hann mun núna leika í Championship deildinni með Sheffield United út þetta tímabil.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.