Fotbolti.net
01.02.10 - 11:49
Magnús Már Einarsson

Fulham fær framherja á láni frá Roma (Staðfest)

Okaka fagnar sigurmarki sínu í gær.

Okaka fagnar sigurmarki sínu í gær.

Canon

Mynd: Getty Images

Fulham hefur fengið framherjann Stefano Okaka á láni frá Roma út þetta tímabil en möguleiki er að framlengja samningnum næsta sumar.
Fulham hafði reynt að fá Okaka í janúar en samningaviðræður sigldu í strand þá. Fyrir helgi gerði Fulham síðan aðra tilraun til að fá leikmanninn og þá náði félagið að semja við Roma.

Okaka, sem er tvítugur, kvaddi Roma með því að skora sigurmarkið í 2-1 sigri á Siena í gær en hann skoraði með fallegru hælspyrnu.

Okaka kemur úr unglingastarfi Roma en hann lék sinn fyrsta leik með aðalliðinu árið 2005 og ári síðar skoraði hann sitt fyrsta mark í Serie A.

Á síðustu leiktíð lék Okaka með Modena og Brescia á láni og nú er hann kominn til Fulham.

Hér að neðan má sjá myndband af markinu fallega sem Okaka skoraði í gær en sá sem lýsti leiknum var ansi hrifinn af tilþrifunum.

Heimild: Heimasíða Fulham

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.