01.02.10 - 13:05
Magnús Már Einarsson
Marcus Bent til QPR (Staðfest) - Þrettánda félagið á ferlinum

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
QPR hefur fengið framherjann Marcus Bent á láni frá Birmingham út þetta tímabilið.
Bent hefur ekki verið inni í myndinni hjá Birmingham á tímabilinu en fyrir áramót var hann í láni hjá Middlesbrough.
Bent kom til Birmingham frá Charlton árið 2008 og hefur skorað þrjú mörk í 35 leikjum með félaginu.
Þessi 31 árs gamli framherji hefur verið duglegur að skipta um félög á ferlinum því auk þess að hafa leikið með Charlton, Birmingham og Middlesbrough þá hefur hann verið á mála hjá Brentford, Crystal Palace, Port Vale, Sheffield United, Blackburn Rovers, Ipswich Town, Leicester City, Everton og Wigan.

Heimild: Sporting Life