01.02.10 - 13:34
Magnús Már Einarsson
Nicky Shorey til Fulham (Staðfest)

Fyrsti leikur Shorey með Aston Villa var gegn FH á Laugardalsvelli.

Mynd: Fótbolti.net - Sölvi Logason

Fulham hefur fengið vinstri bakvörðinn Nicky Shorey á láni frá Aston Villa út þetta tímabil.
Shorey hefur ekki náð að festa sig í sessi hjá Aston Villa síðan að hann kom til félagsins frá Reading sumarið 2008.
Fyrr á leiktíðinni fór þessi 28 ára gamli leikmaður til Nottingham Forest á láni en hann var síðan kallaður aftur til Aston Villa.
Núna hefur Shorey fengið leyfi til að fara aftur á láni og kemur hann til með að hjálpa Fulham þar sem að vinstri bakvörðurinn Paul Konchesky er frá keppni vegna meiðsla.
Shorey er annar leikmaðurinn sem Fulham fær á láni í dag en í morgun kom framherjinn Stefano Okaka til félagsins frá Roma.

Heimild: Sporting Life