Fotbolti.net
01.02.10 - 18:55
Magnús Már Einarsson

Arouna Kone til Hannover á láni (Staðfest)

Arouna Kone til Hannover á láni (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Þýska félagið Hannover 96 hefur fengið framherjan Arouna Kone á láni frá Sevilla út þetta tímabil.
Kone, sem er 26 ára, kom til Sevilla frá PSV Eindhoven á tólf milljónir punda árið 2007.

Kone varð um leið dýrasti leikmaður Sevilla frá upphafi en hann hefur ekki náð að festa sig í sessi hjá liðinu.

Á síðustu leiktíð var hann lítið með vegna hnémeiðsla en núna fær hann tækifæri til að sanna sig að nýju hjá Hanover.

Heimild: Reuters

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.