01.02.10 - 14:05
Magnús Már Einarsson
Benni McCarthy til West Ham (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

West Ham hefur gengið frá kaupunum á Benni McCarthy en hann kemur til félagsins frá Blackburn Rovers fyrir óuppgefna upphæð.
Þessi 32 ára gamli leikmaður skrifaði undir tveggja og hálfs árs samning við West Ham í dag eftir að hafa staðist læknisskoðun.
,,Þetta er frábært félag. Ég er ánægður með að vera kominn hingað því að fyrir fimm árum lenti ég í því að ég hélt að ég væri að verða leikmaður West Ham en Porto hætti við að selja mig,\" sagði McCarthy.
,,Ég hefði viljað að þetta væri mitt fyrsta félag í ensku úrvalsdeildinni. Ég fór til Blackburn í staðinn en West Ham hafði áfram áhuga á mér og núna er ég loksins hér.\"
McCarthy mun fá treyju númer sautján hjá West Ham en hann mun væntanlega leika sinn fyrsta leik gegn Burnley á laugardag.
Líklegt er að Gianfranco Zola styrki framlínu West Ham meira áður en félagaskiptaglugginn lokar síðar í dag en Ilian, Mido og Mateja Kezman hafa allir verið orðaðir við félagið.

Heimild: Heimasíða West Ham