01.02.10 - 14:16
Magnús Már Einarsson
David Nugent áfram á láni hjá Burnley (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
David Nugent, framherji Portsmouth, hefur framlengt lánssamning sinn hjá Burnley.
Nugent kom upphaflega til Burnley á láni undir lok félagaskiptagluggans síðastliðið sumar.
Nugent hefur verið að flakka á milli Burnley og Portsmouth undanfarna daga þar sem að ekki var ljóst hvort að lánssamningurinn yrði framlengdur.
Í dag náðu félögin samkomulagi og því er ljóst að Nugent verður hjá Burnley fram á sumar.
Þessi 24 ára gamli leikmaður hefur skorað þrjú mörk á tímabilinu og hann vonast til að bæta við fleirum á næstunni til að hjálpa Burnley í fallbaráttunni.

Heimild: Heimasíða Burnley