Fotbolti.net
01.02.10 - 15:06
Magnús Már Einarsson

Burnley fær ungan miðjumann á láni frá Chelsea (Staðfest)

Burnley fær ungan miðjumann á láni frá Chelsea (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Burnley hefur fengið miðjumanninn Jack Cork á láni frá Chelsea en samningurinn gildir út þetta tímabil.
Hinn tvítugi Cork hefur ekki ennþá leikið með aðalliði Chelsea en hann hefur verið á láni hjá liðum í neðri deildunum undanfarin ár.

Þessi tvítugi leikmaður hefur áður verið á láni hjá Bournemouth, Scunthorpe United, Southampton, Watford og síðast hjá Aroni Einari Gunnarssyni og félögum í Coventry þar sem að hann lék fyrir áramót.

,,Þetta er viðbót á miðjuna þar sem að mér fannst við þurfa að fá liðsstyrk þar sem að menn hafa verið að glíma við smávægileg meiðsli,\" sagði Brian Laws stjóri Burnley.

Koma Cork til Burnley þýðir að Jóhannes Karl Guðjónsson fær aukna samkeppni um sæti á miðjunni en hann hefur ekki komið við sögu í tveimur síðustu leikjum.

Heimild: Heimasíða Burnley

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.