Fotbolti.net
01.02.10 - 16:08
Magnús Már Einarsson

Leon Best til Newcastle (Staðfest)

Leon Best (til vinstri).

Leon Best (til vinstri).

Canon

Mynd: Getty Images

Newcastle hefur keypt framherjann Leon Best en hann kemur til félagsins frá Coventry.
Newcastle er á toppnum í Championship deildinni en liðið hefur verið í leit að framherja fyrir síðari hluta tímabilsins.

Best stóðst læknisskoðun hjá Newcastle fyrr í dag og skrifaði í kjölfarið undir þriggja og hálfs árs samning við félagið.

Coventry ákvað að selja Best eftir að hann neitaði að skrifa undir nýjan samning en samningur hans átti að renna út næsta sumar.

Best skoraði á dögunum glæsilegt mark fyrir Coventry þegar að liðið tapaði naumlega gegn Portsmouth í enska bikarnum.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.