01.02.10 - 15:53
Hafliði Breiðfjörð
Haraldur Freyr Guðmundsson áfram í Keflavík (Staðfest)

Haraldur í leik með Keflavík í sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Haraldur í leik með Keflavík í sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Varnarmaðurinn Haraldur Freyr Guðmundsson leikur með Keflavík í sumar en þetta staðfesti Þorsteinn Magnússon formaður og framkvæmdastjóri félagsins við Fótbolta.net í dag.
Haraldur Freyr skrifaði í dag undir tveggja ára samning við félagið en hann hafði haft hug á að leika í útlöndum á þessu ári en valdi að halda áfram í Keflavík.
,,Við erum gríðarlega ánægðir með að halda Haraldi og væntum mikils af honum á komandi tímabili. Hann kemur með gríðarlega reynslu í liðið okkar,\" sagði Þorsteinn við Fótbolta.net.
Hann hafði gengið í raðir Keflavíkur 28. júlí síðastliðnn og samdi við félagið út tímabilið eftir að hafa rift samningi sínum hjá Apollon Limassol í Kýpur.
Hann skoðaði svo aðstæður hjá SønderjyskE, Sandefjord og Hibernian í vetur en ekkert varð úr því að hann skipti yfir til þeirra félaga.
Hann lék 8 leiki með Keflavík í Pepsi-deildinni í sumar og skoraði eitt mark. Þá lék hann tvo bikarleiki.