Fotbolti.net
01.02.10 - 16:26
Magnús Már Einarsson

Fulham fær ungan leikmann frá Liverpool (Staðfest)

Fulham fær ungan leikmann frá Liverpool (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Fulham hefur keypt þýska varnarmanninn Christopher Buchtmann frá Liverpool.
Buchtmann er vinstri bakvörður en hann hefur skrifað undir eins og hálfs árs samning við Fulham.

Í fyrra hjálpaði Buchtmann liði Þjóðverja að verða Evrópumeistari hjá U17 ára landsliðum en hann hefur ekkert komið við sögu hjá aðalliði Liverpool.

Buchtmann er annar vinstri bakvörðurinn sem kemur til Fulham í dag en áður hafði Nicky Shorey komið á láni frá Aston Villa.

Fulham fékk einnig framherjann Stefano Okaka í dag en félagið ætlar ekki að bæta við fleiri leikmönnum áður en félagaskiptaglugginn lokar og því er ljóst að James Beattie kemur ekki frá Stoke eins og orðrómur hafði verið um.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.