Fotbolti.net
01.02.10 - 18:03
Hörður Snævar Jónsson

Murphy á láni til Ipswich (Staðfest)

Murphy á láni til Ipswich (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Ipswich hefur fengið Daryl Murphy á láni frá Sunderland út þessa leiktíð.
Þessi leikmaður frá Írlandi var orðaður við Ipswich í sumar en Roy Keane stjóri Ipswich var með hann þegar hann stjórnaði Sunderland.

Murphy hefur verið í fimm ár hjá Sunderland og leikið 110 leiki með liðinu í deild.

Hann hefur leikið 3 leiki í úrvalsdeildinni á þessari leiktíð. Hann á að baki níu landsleiki fyrir Írland.

Hann er annar leikmaður Sunderland sem fer til Ipswich því áður hafði David Healy farið sömu leið á láni.

Heimild: Heimasíða Ipswich

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.