Fotbolti.net
01.02.10 - 17:20
Magnús Már Einarsson

Alan Hutton til Sunderland á láni (Staðfest)

Alan Hutton til Sunderland á láni (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Sunderland hefur fengið hægri bakvörðinn Alan Hutton á láni frá Tottenham en samningurinn gildir út tímabilið.
Hutton, sem er 25 ára, hefur lítið fengið að spila hjá Tottenham þar sem að Vedran Corluka hefur eignað sér hægri bakvarðarstöðuna þar.

,,Við höfum verið fáliðaðir varnarlega að undanförnu þannig að Alan kemur á mjög hentugum tíma og þetta er mikilvæg styrking,\" sagði Steve Bruce stjóri Sunderland.

,,Við höfum verið á eftir honum í þónokkurn tíma og við erum ánægðir með að fá hann hingað til loka tímabilsins. Ég er viss um að hann mun spila stórt hlutverk frá og með núna og þar til í maí.\"

Hutton kom til Tottenham frá Rangers á níu milljónir punda í janúar árið 2008 og hefur leikið 40 leiki með Spurs síðan þá.

Heimild: Heimasíða Sunderland

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.