Fotbolti.net
01.02.10 - 17:20
Hörður Snævar Jónsson

David Healy á láni til Ipswich (Staðfest)

David Healy á láni til Ipswich (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Andri Janusson

David Healy framherji Sunderland hefur verið lánaður út þessa leiktíð til Ipswich.
Steve Bruce stjóri Sunderland ákvað að leyfa Healy að fara eftir að Roy Keane sóttist eftir honum í dag.

Þessi 30 ára gamli framherji frá Norður-Írlandi hefur ekki fest sig í sessi hjá Sunderland.

Hann gekk í raðir Sunderland sumarið 2008 og hefur aðeins byrjað þrjá leiki á þeim tíma.

Healy hefur komið við á mörgum stöðum, hann hefur leikið með Manchester United, Port Vale, Preston, Norwich, Leeds og Fulham.

Heimild: Heimasíða Sunderland

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.