Fotbolti.net
01.02.10 - 18:14
Gunnar Gunnarsson

Mido á láni til West Ham United (Staðfest)

Mido vonast til að geta hjálpað West Ham í fallbaráttunni.

Mido vonast til að geta hjálpað West Ham í fallbaráttunni.

Canon

Mynd: Getty Images

West Ham United hefur gengið frá fjögurra mánaða lánssamningi við egypska framherjan Mido frá Middlesbrough en leikmaðurinn var áður í láni hjá Zamalek í Egyptalandi.
Mido vill ólmur sanna sig á nýjan leik í ensku úrvalsdeildinni eftir frekar misheppnaða dvöl hjá bæði Middlesbrough og Wigan Athletic.

,,Ég hef ákveðið að fórna ákveðnum hlutum en ég er kominn hingað til að spila fótbolta aftur og sanna tilverurétt minn hér á Englandi,\" sagði Mido í samtali við Sky.

,,Ég er mjög ánægður að vera kominn hingað, þetta er frábært félag og vonandi á ég eftir að standa mig vel,\" bætti Mido við.

Stuðningsmenn Hammranna vona að framherjinn nái að endurvekja hina gömlu góðu daga þegar hann dvaldi hjá Tottenham við góðan orðstír. Leikmaðurinn skoraði þá 13 mörk í 36 leikjum, leiktíðina 2005/06.

Mido kemur til West Ham ásamt Benni McCarthy öðrum nýjum framherja á Upton Park, en Suður-Afríkumaðurinn gekk til liðs við félagið fyrr í dag frá Blackburn Rovers.

Heimild: Goal.com

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.