Fotbolti.net
01.02.10 - 17:42
Magnús Már Einarsson

Adam Johnson til Manchester City (Staðfest)

Adam Johnson til Manchester City (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Manchester City hefur keypt vinstri kantmanninn Adam Johnson frá Middlesbrough en talið er að kaupverðið hljóði upp á sjö milljónir punda.
Johnson, sem er 22 ára gamall, stóðst læknisskoðun hjá Manchester City fyrr í dag og skrifaði í kjölfarið undir samning sem gildir til sumarsins 2014.

Gengið var frá samningum áður en félagaskiptaglugginn lokaði klukkan 17:00 en þetta eru stærstu félagaskipti dagsins hingað til.

,,Við erum ánægðir með að Adam valdi að koma hingað,\" sagði Roberto Mancini stjóri Manchester City.

,,Hann er mjög góður leikmaður með magnaða hæfileika og hjá þessu félagi viljum við alltaf reyna að fá hæfileikaríka leikmenn frá Bretlandi.\"

Johnson lék sinn fyrsta leik með Middlesbrough 17 ára gamall en hann hefur einnig leikið með Watford og Leeds á láni á ferli sínum.

Í vetur hefur Johnson farið á kostum með Middlesbrough en hann hefur alls skorað þrettán mörk í 96 leikjum með liðinu á ferli sínum.

Johnson mun fá treyju númer ellefu hjá Manchester City en hann verður í leikmannahópi liðsins í fyrsta skipti gegn Hull um næstu helgi.

Líklegt er að Johnson sé eini leikmaðurinn sem komi til Manchester City í dag en argentínski miðjumaðurinn Fernando Gago mun líklega ekki koma til félagsins frá Real Madrid eins og orðrómur hafði verið um.

Heimild: Heimasíða Manchester City

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.