Fotbolti.net
01.02.10 - 18:16
Hafliði Breiðfjörð

McDonald og Miller til Middlesbrough frá Skotlandi (Staðfest)

McDonald í baráttu við Eggert Gunnþór Jónsson leikmann Hearts.

McDonald í baráttu við Eggert Gunnþór Jónsson leikmann Hearts.

Canon

Mynd: Getty Images

Middlesbrough staðfesti rétt í þessu á vef sínum að félagið hafi fengið framherjana Scott McDonald og Lee Miller úr skosku úrvalsdeildinni. Þar með er félagið búið að fá sjö leikmenn í janúar.
McDonald varð fimmti leikmaður Glasgow Celtic til að ganga til ilðs við Middlesbrough í janúar en Miller kemur til félagsins frá Aberdeen. Báðir eru þeir 26 ára gamlir.

Áður höfðu Barry Robson, Willo Flood og Chris Killen komið til félagsins frá Celtic auk þess sem þeir Stephen McManus og Kyle Naughton komu á láni.

McDonald hefur skorað 50 mörk í 88 deildarleikjum með Celtic en hann er ástralskur landsliðsmaður sem gæti spilað á HM í sumar.

Miller spilaði sinn annan landsleik fyrir Skotland í nóvember. Hann hefur verið iðinn við kolann í markaskorun hjá Aberdeen undanfarnar tvær leiktíðir.

Boro staðfest einnig að samningi við Nathan Porritt kantmann liðsins hafi verið rift.

Heimild: Vefur Middlesbrough

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.