01.02.10 - 18:21
Hafliði Breiðfjörð
Asmir Begovic til Stoke City (Staðfest)

Asmir Begovic.

Mynd: Getty Images

Asmir Begovic.

Mynd: Getty Images
Stoke City hefur staðfest að Asmir Begovic markvörður Portsmouth sé genginn til liðs við félagið en kaupverðið var 3,25 milljónir punda.
Becovic sem er bosnískur landsliðsmaður skrifaði undir fjögurra ára samning við Stoke City og náði félagskiptunum áður en félagaskiptaglugginn lokaði.
Hann er 22 ára gamall og Tony Pulis stjóri liðsins sagði á vef félagsins að hópurinn væri að styrkjast með því að fá einn af bestu ungu markvörðum Englands.
,,Asmir er maður sem við höfum verið lengi á eftir og við teljum að sé hugsanlega besti ungi markvörðurinn í landinu,\" sagði Pulis.

Heimild: Vefur Stoke