Fotbolti.net
01.02.10 - 18:49
Hafliði Breiðfjörð
Ítalska deildin

Mariga missti af Man City en fór í staðinn til Inter Milan (Staðfest)

Mariga fór til Inter Milan.

Mariga fór til Inter Milan.

Canon

Mynd: Getty Images

Það hefur verið heldur óvenjulegur dagur hjá kenýska miðjumanninum McDonald Mariga sem fyrr í dag hélt að hann væri að ganga til liðs við Manchester City en nú undir kvöld endaði hann hjá Inter Milan.
Mariga var við það að ganga til Manchester City fyrr í dag en þar sem hann fékk ekki atvinnuleyfi á Englandi gat ekki orðið úr þeim félagaskiptum hans frá Parma á Ítalíu.

Ítalíumeistarar Inter Milan gripu þess í stað tækifærið og fengu leikmanninn til sín og gerðu við hann fjögurra ára samning, sem gildir til 30. júní 2014.

Mariga er fæddur í Nairobi 4. apríl 1987. Haann mun klæðast treyju 17 hjá Inter Milan.

Hluti af þeim samningi er að Jonathan Ludovic Biabiany sem er þegar hjá Parma á láni verður áfram hjá félaginu í sameiginlegri eigu félaganna. Þá mun Luis Antonio Jimenez fara til félagsins á láni eftir að hafa snúið til baka úr láni hjá West Ham.

Heimild: Vefur Inter

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.