01.02.10 - 21:09
Magnús Már Einarsson
Robbie Keane til Celtic á láni (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Celtic hefur fengið framherjann Robbie Keane á láni frá Tottenham út tímbailið.
Þessi 29 ára gamli Íri verður kynntur til sögunnar á blaðamannafundi í Glasgow klukkan 23:00 í kvöld.
Keane hefur verið stuðningsmaður Celtic síðan í æsku og hann hefur ítrekað verið orðaður við félagið að undanförnu.
,,Hann þarf að spila og að fara til Celtic er draumur sem er að rætast hjá honum,\" sagði Harry Redknapp stjóri Tottenham í dag.
Tony Mowbray, stjóri Celtic, hafði nóg að gera á lokadegi félagaskiptagluggans í dag því að hann fékk einnig Diomansy Kamara frá Fulham, Edson Braafheid frá Bayern Munchen og Paul Slane frá Motherwell.

Heimild: BBC