Fotbolti.net
01.02.24 - 12:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Sunderland selur Pritchard og kaupir Mundle (Staðfest)

Mundle mættur til Sunderland.

Mundle mættur til Sunderland.

Canon

Mynd: Sunderland

Sunderland hefur fest kaup á Romaine Mundle og er hann genginn í raðir enska félagsins. Sunderland kaupir hann frá Standard Liege og greiðir Sunderland 2 milljónir punda fyrir vængmanninn.

Mundle er tvítugur Englendingur sem uppalinn er hjá Tottenham en hélt til Belgíu í fyrra. Hann skrifaði undir fjögurra ára samning við Standard síðasta sumar. Hann skrifar undir fjögurra og hálfs árs samning við Sunderland.

Sunderland var ekki lengi að tilkynna þennan nýjasta leikmann félagsins eftir að Alex Pritchard var seldur til Birmingham.
Pritchard átti einungis sex mánuði eftir af samningi sínum við Sunderland og greiðir Birmingham einungis um 100 þúsund pund fyrir hann.

Pritchard er þrítugur sóknarsinnaður miðjumaður sem hefur einnig spilað fyrir Norwich og Huddersfield. Tony Mowbray, stjóri Birmingham, vann með Pritchard á árunum 2022-23 hjá Sunderland.

Championship - karlar

#LiðLmunStig
1Birmingham15+1429
2Middlesbrough15+1129
3Stoke City15+629
4Wolves15+828
5West Brom15+828
6Swansea15+426
7Southampton15+1424
8QPR15+624
9West Ham15+1423
10Sheffield Utd15+222
11Portsmouth15+222
12Norwich15+821
13Blackburn15-121
14Cardiff City15018
15Wrexham15-218
16Millwall15-418
17Bristol City15-818
18Bolton15-917
19Charlton Athletic15-1017
20Watford15-1015
21Lincoln City15-1115
22Burnley15-910
23Derby County15-1610
24Preston NE15-178
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.