15.11.26 - 12:53
Brynjar Ingi Erluson
Langar að setjast niður með Ferguson - „Finnst hann endurspegla mín eigin gildi“

Mauricio Pochettino

Mynd: EPA

Pochettino dáist að Ferguson

Mynd: EPA

Mauricio Pochettino

Mynd: EPA
Mauricio Pochettino tekur formlega við Manchester United á miðvikudaginn þegar landsliðsverkefni hans með Bandaríkjunum lýkur, en hann vonast til að fá tækifæri til að hitta Sir Alex Ferguson og ræða við hann um það verkefni sem bíður hans hjá félaginu.

TENGT EFNI
Pochettino tekinn við Man Utd (Staðfest)
Argentínumaðurinn var kynntur til leiks hjá United á föstudaginn, en hann tekur við liðinu af Michael Carrick sem var látinn taka pokann sinn.
Pochettino vildi klára verkefni sitt með bandaríska landsliðinu áður en hann tæki við United og hefur nú loksins fengið tækifæri til að stýra félaginu.
Sir Alex Ferguson er síðasti stjórinn sem gerði United að Englandsmeisturum og jafnframt sá sigursælasti í sögu félagsins. Hann hefur lengi verið mikil fyrirmynd Pochettino sem segist hafa gríðarlega mikið álit á Skotanum.
„Ég hef ekki hitt hann enn en ég mun fá tækifæri til þess eftir þriðjudaginn. Ég sagði fyrir mörgum árum og segi enn að Sir Alex Ferguson endurspeglar allt það sem ég dáist að í þjálfara, stjóra og manneskju. Mér finnst hann endurspegla mín eigin gildi og ég dáist gríðarlega að honum.“
„Frá og með þriðjudeginum fáum við tækifæri til að ræða saman, það er að segja ef ég hef tíma því þetta verður mjög strembið og mikið að gera. En ef tækifærið gefst mun ég að sjálfsögðu nýta það,“ sagði Pochettino við Telegraph.
Pochettino fær þó enga auðvelda byrjun hjá United, því fyrsti leikur hans verður gegn erkifjendunum í Liverpool á Anfield.