01.03.12 - 06:00
Magnús Már Einarsson
Einar Már í KV (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Eva Björk Ægisdóttir

KV úr annarri deild hefur fengið Einar Már Þórisson til liðs við sig frá KR en gengið var frá félagaskiptum í vikunni.
Einar sem er sóknarmaður er uppalinn í KR en lék sem lánsmaður hjá Hamar í Hveragerði á síðustu leiktíð.
Einar lék stórt hlutverk í 2. flokks liði KR sem varð Íslandsmeistari 2009 og Bikarmeistari 2010.
Þessi tvítugi leikmaður hefur verið viðriðinn meistaraflokk félagsins síðustu ár og lék m.a. fimm leiki með KR fyrr í vetur.
Einar er tíundi leikmaðurinn sem gengur til liðs við KV eftir að liðið tryggði sér sæti í 2. deild síðastliðið haust.