Fotbolti.net
01.03.12 - 11:05
Magnús Már Einarsson

Hjörtur Hermannsson til PSV Eindhoven (Staðfest)

Hjörtur Hermannsson til PSV Eindhoven (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Eva Björk Ægisdóttir

Hjörtur Hermannsson, leikmaður Fylkis, skrifaði í morgun undir þriggja og hálfs árs samning við hollenska félagið PSV Eindhoven en þetta kemur fram á vef Morgunblaðsins.
,,Það er frábært að þetta skuli vera frágengið, mér líst afar vel á mig hjá PSV og félagið stóðst allar mínar væntingar og meira en það,\" sagði Hjörtur við mbl.is að undirskriftinni lokinni.

Hjörtur, sem er miðjumaður, mun leika áfram með Fylki þar til að félagaskiptaglugginn í Hollandi opnar um mitt sumar.

Þá mun hann fara í U19 ára lið PSV Eindhoven auk þess að leika með varaliði félagsins.

Hjörtur, sem fagnaði 17 ára afmæli sínu í síðasta mánuði, hann steig sín fyrstu skref með meistaraflokki Fylkis á síðasta tímabili. Hann kom þá við sögu í níu leikjum í Pepsi-deildinni og skoraði í þeim eitt mark.

Að auki hefur Hjörtur skorað þrjú mörk í 17 leikjum með U17 ára landsliði Íslands og tvö mörk í átta leikjum með U19 ára landsliðinu.

Heimild: Morgunblaðið

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.