Fotbolti.net
01.03.12 - 14:00
Magnús Már Einarsson

Adam Hammill til Middlesbrough (Staðfest)

Adam Hammill til Middlesbrough (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Middlesbrough hefur fengið kantmanninn Adam Hammill á láni frá Wolves út tímabilið.

Hammill gekk í raðir Wolves frá Barnsley í janúar í fyrra en hefur einungis leikið 23 leiki síðan þá.
,,Adam getur komið með önnur gæði í leikmannahópinn,\" sagði Tony Mowbray stjóri Middlesbrough ánægður með liðsstyrkinn.

Hammill hóf ferilinn hjá Liverpool en hann náði aldrei að leika með aðalliði félagsins.

Þessi 24 ára gamli leikmaður lék með Dunfermline, Southampton og síðan Blackpool áður en hann fór á endanum til Barnsley.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.