01.03.12 - 06:00
Daníel Freyr Jónsson
Robbie Earnshaw til Toronto FC (Staðfest)

Robert Earnshaw.

Mynd: Twitter

Robert Earnshaw.

Mynd: Twitter
Welski framherjinn Robert Earnshaw er genginn í raðir Toronto FC í MLS-deildinni frá Cardiff.
Earnshaw átti erfitt uppdráttar hjá Cardiff undanfarin misseri og átti ekki fast sæti í liðinu.
Lék hann meðal annars með Maccabi Tel Aviv sem lánsmaður í lok síðasta árs, en snéri hinsvegar aftur til Cardiff eftir áramót.
Hann ákvað hinsvegar að fara endanlega frá liðinu og verður hann löglegur með Toronto þegar nýtt keppnistímabil hefst í MLS-deildinni um helgina.
Earnshaw er 31 árs gamall og hefur leikið hátt í 500 leiki á ferlinum, en hann lék meðal annars í úrvalsdeildinni með WBA og Derby.