Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
   mán 01. mars 2021 06:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Man Utd segir að Shaw hafi misheyrt skilaboðin í gær
Mynd: Getty Images
„Dómarinn sagði meira að segja við Maguire, ég heyrði hann segja, 'ef ég segi að þetta er víti þá mun þetta verða mjög umtalað eftir á.' Ég veit ekki alveg hvað gerðist þar. Maguire sagði að þeim var sagt að þetta væri víti, þeim var sagt það af VAR. Ég er ekki viss og ég skil þetta ekki. Við vorum með boltann svo af hverju að stoppa ef þú ætlar ekki að dæma víti."

Þetta sagði Luke Shaw í viðtali eftir leik Chelsea og Manchester United í gær.

Stuart Attwell dæmdi leikinn en þegar ManchesterEveningNews leitaði til Manchester United sagði talsmaður félagsins að Shaw hafi misheyrst hvað fór fram milli Attwell og Maguire.

United vildi fá vítaspyrnu þegar boltinn fór í hönd Callum Hudson-Odoi í fyrri hálfleik en ekkert var dæmt og hefur atvikið verið mikið rætt síðan.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner