01.04.09 - 22:52
Hafliði Breiðfjörð
Alan Shearer tók við Newcastle (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Newcastle staðfesti í kvöld að Alan Shearer hafi tekið við sem knattspyrnustjóri félagsins úr þetta tímabil, sólarhring eftir að enskir fjölmiðlar hófu að greina frá tíðindunum.
Iain Dowie fyrrverandi knattspyrnustjóri QPR mun verða aðstoðarmaður hans og þjálfararnir Chris Hughton og Colin Calderwood munu áfram starfa fyrir félagið. Dennis Wise er hinsvegar hættur.
Shearer sem er 38 ára gamall verður fjórði stjóri Newcastle á tímabilinu og hefur átta leiki til að bjarga liðinu frá falli úr ensku úrvalsdeildinni.
Shearer er fyrir í guðatölu hjá félaginu eftir að hafa skorað 206 mörk í 404 leikjum fyrir þá á tíu ára tímabili. Hann lagði skóna svo á hilluna árið 2006.

Heimild: BBC