Fotbolti.net
01.04.12 - 11:00
Hafliði Breiðfjörð

Sami Hyypia ráðinn stjóri Bayer Leverkusen (Staðfest)

Sami Hyypia er orðinn knattspyrnustjóri Bayer Leverkusen.

Sami Hyypia er orðinn knattspyrnustjóri Bayer Leverkusen.

Canon

Mynd: Getty Images

Kvennalandslið
Finnski varnarmaðurinn Sami Hyypia var í dag ráðinn tímabundin stjóri Bayer Leverkusen með Sascha Lewandowski þjálfara U19 ára liðs félagsins sér til aðstoðar en félagið tilkynnti um það og brottrekstur Robin Dutt þjálfara liðsins á sama tíma í morgun.
Þetta kemur í kjölfarið á því að liðið tapaði 2-0 fyrir Freiburg í gær og óljóst hvort liðið nái sæti í Evrópudeildinni.

Hyppia sem er fyrrverandi varnarmaður Liverpool og Leverkusen mun stýra liðinu og Lewandowski verður þjálfari liðsins. Þeir fá starfið að minnsta kosti út tímabilið að sögn félagsins.

,,Ég þekki liðið,\" sagði Hyypia sem lauk ferli sínum sem leikmaður með Leverkusen á síðustu leiktíð en hafði áður verið í áratug hjá Liverpool.

Leverkusen er í sjötta sæti Bundesligunnar fyrir ofan Werder Bremen og Wolfsburg á markamun.

Dutt hafði tekið við liðinu á síðasta ári eftir góðan árangur með Freiburg. Leverkusen féll út úr Meistaradeildinni fyrir Barcelona í síðasta mánuði og er líka fallið úr þýska bikarnum.

Heimild: Reuters

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.