Liverpool vill Conceicao - City að vinna kapphlaupið um Anderson - Ýmsir orðaðir við Man Utd
   mið 01. apríl 2026 18:23
Brynjar Ingi Erluson
Matondo mættur til Brann (Staðfest)
Rabbi Matondo mun spila undir stjórn Freysa
Rabbi Matondo mun spila undir stjórn Freysa
Mynd: EPA
Freysi var að ná í öflugan leikmann
Freysi var að ná í öflugan leikmann
Mynd: EPA
Velski landsliðsmaðurinn Rabbi Matondo er formlega genginn í raðir norska félagsins Brann sem Freyr Alexandersson þjálfar, en hann kemur frá Rangers. Þetta staðfesti félagið í gær.

Matondo er 25 ára gamall vængmaður sem kemur með mikil gæði í norsku deildina.

Hann er fæddur og uppalinn á Englandi þar sem hann spilaði með unglingaliðum Cardiff og Manchester City.

Vængmaðurinn fór síðar til Schalke þar sem hann þreytti frumraun sína með meistaraflokki, en árið 2022 hélt hann til Rangers.

Þar lék hann í fjögur ár en kom aðeins við sögu í þremur leikjum með liðinu á þessari leiktíð.

Matondo ætlar að koma ferlinum aftur á flug en hann fær tækifæri til þess hjá Freysa og lærisveinum hans í Brann.

Rangers staðfesti brottför hans til Brann í gær en þetta eru stór skipti fyrir Brann og greinileg yfirlýsing um að félagið ætli sér stóra hluti á komandi leiktíð þrátt fyrir að hafa tapað fyrstu tveimur deildarleikjum tímabilsins.

Matondo á 15 A-landsleiki og eitt mark fyrir velska landsliðið. Hann var kallaður inn í hópinn í þessum glugga en kom ekkert við sögu.

Fjórir Íslendingar eru á mála hjá Brann en það eru þeir Eggert Aron Guðmundsson, Jón Dagur Þorsteinsson, Kristall Máni Ingason og Sævar Atli Magnússon.


Slapp
banner