Fotbolti.net
01.05.09 - 14:08
Hafliði Breiðfjörð

Sarah McFaddan og tvær aðrar til GRV (Staðfest)

Sarah McFadden leikur með GRV í sumar.

Sarah McFadden leikur með GRV í sumar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Kvennalið GRV hefur fengið til sín þrjá erlenda leikmenn fyrir baráttuna í Pepsi-deild kvenna á komandi sumri en tvær þeirra eru landsliðskonur Norður-Írlands.
Fyrst bera nefna Sarah McFadden sem er landsliðskona frá Norður Írlandi. Hún lék með Fylki í Landsbankadeildinni á síðustu leiktíð, samtals 11 leiki í deild og bikar en félagið ákvað að halda henni ekki út tímabilið eftir að hún fór í óleyfi til liðs við landslið Norður Írlands á miðju sumri.

Hinar eru Kimberly Turner sem er einnig landsliðskona frá Norður Írlandi og bandarísk stúlka sem heitir Erin Hamrick og er skólafélagi Sarah McFadden í Bandaríkjunum.

GRV hefur misst níu leikmenn frá síðustu leiktíð því þær Begum Malali, Bonnie Mills, Dína María Margeirsdóttir, Gunnlaug Guðmundsdóttir, Hólmfríður Ósk Samúelsdóttir, Ólöf Helga Pálsdóttir, Stefanía Ósk Margeirsdóttir, Þórdís Gunnlaugsdóttir og Þuríður Sif Ævarsdóttir sem voru með þeim í sumar verða ekki með í sumar.

Félagið hefur þó fengið meiri styrk en þessari þrjár sem fyrr voru nefndar því þær Eydís Ösp Haraldsdóttir sem var frá vegna meiðsla síðustu tvö ár og unglingalandsliðsstúlkan Alma Rut Garðarsdóttir sem missti af síðustu leiktíð vegna krossbandaslits snúa aftur í liðið í sumar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.